Ef þú ert á lyfinu Decutan (isotretinoin) hefur þú líklega tekið eftir því að húðin breytist töluvert. Hún getur orðið mjög þurr, viðkvæm og jafnvel strekkt, sérstaklega fyrstu vikurnar. Þetta er alveg eðlilegt, þar sem lyfið minnkar fituframleiðslu húðarinnar. Það hjálpar gegn bólum en á sama tíma missir húðin sitt náttúrulega jafnvægi og raka.
Á þessum tíma snýst húðumhirðan ekki lengur um að þurrka upp bólur heldur um að næra, róa og vernda húðina. Með réttri rútínu er hægt að draga verulega úr óþægindum og halda húðinni mjúkri og heilbrigðri á meðan meðferð stendur.
Það fyrsta sem skiptir máli er að velja mildan hreinsi sem hreinsar húðina án þess að taka af henni þann raka sem hún á eftir. Mild Creamy Cleanser er frábær kostur fyrir viðkvæma húð þar sem hann fjarlægir óhreinindi á mildan hátt og skilur húðina eftir mjúka en ekki strekta.
Eftir hreinsun er gott að nota toner, þó margir sleppi því skrefi. Á Decutan getur réttur toner hins vegar gert mikinn mun. Hann hjálpar til við að klára hreinsun, róa húðina, bæta raka og undirbúa hana fyrir næstu skref í rútínunni Soft Soothing Tonic er sérstaklega mildur og hentar vel þegar húðin er viðkvæm og þurr.
Næsta skref er rakaserum sem vinnur dýpra í húðinni. Deep Xpress Moist Serum er algjört lykilskref þar sem það hjálpar húðinni að halda raka og minnkar þá strekktu tilfinningu sem margir finna fyrir. Þetta skref getur skipt miklu máli þegar kemur að því að halda húðinni góðri yfir daginn.
Rakakremið er síðan hjartað í rútínunni. Á meðan á Decutan stendur þarf húðin ríkulegan raka og vernd. Hyaluron3 Replenish Cream veitir djúpan raka og styrkir varnir húðarinnar, en ef húðin er sérstaklega þurr getur verið gott að velja enn ríkara krem eins og Super Hydrating Cream sem gefur langvarandi mýkt og næringu.
Ef húðin verður mjög þurr eða byrjar að flagna er gott að bæta inn rakamaska einu til tvisvar sinnum í viku. Deep Xpress Hydro Mask er eins konar rakabomba fyrir húðina og hjálpar henni að ná sér aftur í jafnvægi.
Á meðan á meðferð stendur er mikilvægt að halda rútínunni einfaldri og forðast vörur sem geta ert húðina. Retinol, sýrur og grófir skrúbbar ættu að vera settir til hliðar tímabundið. Í staðinn ætti fókusinn að vera á raka, ró og vernd. Einnig er mikilvægt að nota sólarvörn daglega þar sem húðin verður viðkvæmari fyrir sólinni.
Algeng mistök eru að nota of léttar vörur eða halda áfram að nota vörur sem eru ætlaðar til að þurrka bólur. Á þessum tímapunkti þarf húðin ekki meiri þurrk heldur meiri umhyggju. Með því að velja réttar vörur og halda sig við einfalda, rakagefandi rútínu er hægt að gera Decutan meðferðina mun auðveldari.
Með réttri húðumhirðu geturðu ekki bara minnkað þurrk og ertingu heldur líka haldið húðinni fallegri og heilbrigðari á meðan á meðferð stendur. Það skiptir öllu máli að hlusta á húðina og gefa henni það sem hún raunverulega þarf – raka, ró og vernd.
🤍 Ef þú ert óviss hvaða vörur henta þér best, þá er alltaf velkomið að hafa samband eða koma til okkar – við hjálpum þér að finna réttu rútínuna fyrir þína húð.