Lýsing
Ávaxtasýru djúphreinsir
Fullkominn fyrir grófa- opna- bólótta- ogvandamálahúð. Hentar einnig eldri húðgerðum sem vantar orkuskot.
Orkumikið AHA-djúphreinsigel sem endurlífgar húðina og gefur henni samstundis fallegann ljóma!
Sérþróuð samsetning ávaxtasýra örva húðflögnun og náttúrulega frumendurnýjun.
Djúpvirkandi formúlan:
- Hreinsar stíflaðar húðholur
- Dregur úr fílapensla- og bólumyndun
- Hefur samherpandi áhrif á opnar húðholur
Kostir ávaxtasýra eru fjölmargir m.a. auka þær jafnvægi húðar, viðhalda raka og draga úr offramleiðslu fitukirtla. Einnig minnka sýrur misfellur og gera húðina sjáanlega sléttari og líflegri. Dökkir blettir lýsast og húðtónn jafnast.
Við mælum með ávaxtasýrum fyrir allar húðgerðir sem mega við aukinni örvun og virkni.
Gott val fyrir húð sem þolir ekki kornadjúphreinsa þar sem kornin geta verið of ertandi fyrir aumar bólgur og bólótta húð.
Helstu innihaldsefni : Glycolic, Malic, Tartaric og Sítrus sýru
ATH. Forðast skal sól og ljósabekki þar sem húðin verður ljósnæmari við noktun ávaxtasýra.