Lýsing
Upprunalega BB kremið, þróað af húðsjúkdómasérfræðingum. Einstaklega gott fyrir rauða, erta, rósroða, feita og óhreina húð. Krem er með Panthenol og Bisabol sem róar og sefar erta húð.
Kemur í fjórum litartónum: Light, Classic, Honey og Dark Brown.
- Hentar öllum húðtegundum.
- Gott á bólur v. sótthreinsandi eiginleika – Þurrkar ekki húðina.
- Dregur úr bólgum og róar húðina.
- Hylur vel t.d. háræðaslit, stórar húðholur, roða og litabreytingar.
- Mjög gott á sólbruna þar sem kremið dregur úr roða og bruna.
- Sótthreinsandi.
- Örvar endurnýjun húðar.
- Dregur úr kláða.
- Hægt að setja yfir allt andlit eða nota sem hyljara.
- Mjög gott á húð eftir lasermeðferð.