Janssen Cosmetics
Jóladagatal Janssen Cosmetics 2026
Jóladagatal Janssen Cosmetics 2026
Vara ófáanleg
Aðventudagatal Janssen Cosmetics 2026
24 dagar af dekri, raka og ljóma – falleg niðurtalning til jóla!
Gerðu aðventuna enn notalegri með glæsilegu ampúlujóladagatali frá Janssen Cosmetics. Á bak við 24 glugga leynast 25 sérvaldar ampúlur sem veita húðinni raka, næringu og fallegan ljóma.
Dagatalið 2026 er innblásið af töfrandi litadýrð norðurljósanna og inniheldur vandlega samsettan húðumhirðukúr sem hjálpar til við að mýkja húðina, draga úr þreytumerkjum og gefa henni ferskara yfirbragð.
Dásamleg gjöf fyrir húðvöruunnendur – eða notalegt dekur fyrir sjálfa þig í desember.
Hvers má vænta?
Með daglegri notkun fær húðin markvissa umhirðu sem hjálpar til við að bæta rakastig, mýkja húðina og draga úr ásýnd fínna lína. Húðin verður ferskari, sléttari og fær fallegan náttúrulegan ljóma.
Hentar fyrir
- Húð sem þarfnast aukins raka og næringar
- Þroskaða húð með fínum línum
- Þreytta húð sem vantar ferskleika og ljóma
- Húð sem hefur misst mýkt og fyllingu
- Þau sem vilja dekra við húðina í aðdraganda jólanna
Notkun
Notið ampúlurnar í þeirri röð sem þær birtast í dagatalinu, eina meðferð á dag í 24 daga.
Hreinsið húðina og opnið ampúluna varlega með meðfylgjandi ampúluopnara. Hellið um helmingi innihaldsins í lófann og berið á andlit, háls og bringu með léttum klappandi hreyfingum. Endurtakið með afganginn og ljúkið með viðeigandi andlitskremi.
Á aðfangadag: Notið fyrst Marine Collagen Fluid og síðan Vita X Power Fluid til að gefa húðinni aukinn raka og ljóma fyrir hátíðina.
Helstu innihaldsefni
Hyaluronsýra – bindur raka og hjálpar til við að slétta fínar þurrklínur. C-vítamín – andoxunarefni sem styður við ferskara og jafnara yfirbragð. Astaxanthín – hjálpar til við að vernda húðina gegn áhrifum sindurefna. Sjávarkollagen – gefur húðinni raka og fyllri ásýnd. Matrixyl™ peptíð – hjálpa til við að draga úr ásýnd fínna lína.
Dagatalið inniheldur
- 25 sérvaldar ampúlur í 24 daga húðumhirðukúr
- 24 númeraða glugga með ampúlum fyrir hvern dag
- Tvær ampúlur á aðfangadag
- Ampúluopnara sem fylgir með í fyrsta glugganum
- Glæsilegar jólaumbúðir innblásnar af norðurljósunum
