Janssen Cosmetics
Purifying BHA Serum
Purifying BHA Serum
Vara ófáanleg
Þegar húðin er í ójafnvægi, með stíflur, bólur eða fitukenndan glans þá þarf hún ekki meira álag, heldur rétta umhirðu.
Þetta öfluga BHA serum vinnur djúpt í húðinni þar sem vandamálin byrja. Það hjálpar til við að hreinsa svitaholur, draga úr bólum og jafna fituframleiðslu á sama tíma og það heldur húðinni mjúkri og í jafnvægi.
Áferðin er létt og frásogast hratt í húðina án þess að skilja eftir sig klístur tilfinningu – aðeins hreinni, sléttari og ferskari húð.
✨ Niðurstaðan - Hreinni húð, minni stíflur og fallegri áferð með heilbrigðum ljóma.
Helstu innihaldsefni: Salicylic Acid (BHA) – Djúphreinsar svitaholur, leysir upp stíflur og vinnur á bólum. Niacinamide (B3) – Jafnar fituframleiðslu, róar húðina og minnkar sýnileika svitahola. Allantoin – Róar húðina og minnkar ertingu. Panthenol (Provitamin B5) – Gefur raka og styrkir varnir húðarinnar.
💖 Hentar fyrir:
• Bóluhúð (unglingar & fullorðnir)
• Fitumikla húð
• Húð með stíflum og fílapenslum
• Óhreina eða ójafna húð
• Húð sem þarf “reset”
Notkun: Berið á hreina húð, morgna og/eða kvölds. Dreifið jafnt yfir andlit og látið síast inní húð. Forðist augnsvæði, fylgið eftir með rakakremi.
Mikilvægt er að nota sólarvörn yfir daginn þegar notað er BHA serum.
Nánar um vöruna:
BHA serum með salicylic acid sem hjálpar til við að hreinsa stíflaðar svitaholur, draga úr bólum og jafna fituframleiðslu. Hentar sérstaklega vel fyrir bóluhúð og fitumikla húð sem þarf djúphreinsun og jafnvægi.
