Wrinkles Schminkles
Neck Wrinkle Patch
Neck Wrinkle Patch
Vara ófáanleg
Hálsplástur
Hálsinn gleymist oft í húðrútínunni – þar til fínar línur og láréttar hálslínur fara að verða meira áberandi.
Hálsplásturinn frá Wrinkles Schminkles er endurnýtanlegur sílikonplástur sem er sérstaklega lagaður að hálsinum. Hann er gerður úr 100% medical-grade silicone og myndar rakaverndandi lag yfir húðinni sem hjálpar henni að halda raka og dregur úr krumpun á meðan plásturinn er notaður.
Plásturinn hentar sérstaklega vel fyrir láréttar línur og hrukkur á hálsi – þar á meðal svokallað „tech neck“, línur sem geta orðið meira áberandi við endurteknar hreyfingar og þegar við horfum mikið niður á síma og önnur tæki.
Settu hann á fyrir svefn og leyfðu honum að vinna á meðan þú sefur – einföld leið til að gefa hálsinum sömu athygli og andlitinu.
Hvers má vænta: Rakameiri og sléttari húð á hálsi ásamt mýkri ásýnd fínna lína, hrukka og láréttra hálslína. Sýnileg sléttandi áhrif geta komið fram strax eftir fyrstu notkun og regluleg notkun styður við viðvarandi árangur.
Helstu innihaldsefni:
100% medical-grade silicone – Myndar rakaverndandi lag yfir húðinni sem hjálpar henni að halda raka, styður við sléttara yfirbragð og dregur úr krumpun húðarinnar á meðan plásturinn er notaður.
Hentar fyrir
• Láréttar línur á hálsi
• Fínar línur og hrukkur
• Svokallað „tech neck“
• Þurra og rakasnauða húð á hálsi
• Húð sem vantar sléttara og fyllra yfirbragð
Af hverju þú munt elska þetta
Húðrútínan ætti ekki að enda við kjálkalínuna.
Hálsplásturinn er einföld leið til að gefa þessu oft gleymda svæði raka og markvissa umhirðu – án þess að bæta enn einu kreminu við baðherbergishilluna. Settu hann á fyrir svefn og leyfðu honum að vinna á meðan þú sefur.
Notkun
Hreinsið hálsinn og þurrkið húðina vandlega. Húðin þarf að vera alveg hrein, þurr og laus við krem, serum, olíur og aðrar húðvörur áður en plásturinn er settur á.
Fjarlægið hlífðarfilmuna og leggið plásturinn yfir hálsinn með límhliðina að húðinni. Sléttið varlega úr honum svo hann liggi vel að húðinni.
Fyrir besta árangur er mælt með að nota plásturinn reglulega og helst yfir nótt. Einnig má hafa hann á í 1–2 klukkustundir þegar þú vilt fljótlegt raka- og sléttiboost.
Hversu oft: Má nota reglulega sem hluta af húðrútínunni, jafnvel daglega eftir þörfum.
Hugsaðu vel um plásturinn
Til að halda plástrinum hreinum og viðhalda líminu sem best mælum við með Wrinkles Schminkles sílikonplástra sápunni, sem er sérstaklega hönnuð fyrir endurnýtanlegu sílikonplástrana.
Eftir notkun setur þú 1–2 pumpur af sápunni á límhlið plástursins og nuddar varlega með hringlaga hreyfingum. Skolaðu síðan vandlega með volgu vatni.
Leggðu plásturinn með límhliðina upp og leyfðu honum að loftþorna alveg. Þegar hann er orðinn þurr er hann settur aftur á geymsluspjaldið þar til næst.
Forðastu venjulega sápu og önnur hreinsiefni, þar sem þau geta haft áhrif á límið og stytt endingartíma plástursins.
Innihald: 1 endurnýtanlegur sílikonplástur fyrir háls.
Nánar um vöruna
Endurnýtanlegur Wrinkles Schminkles hálsplástur úr 100% medical-grade silicone fyrir fínar línur, hrukkur og „tech neck“. Plásturinn hjálpar húðinni að halda raka og gefur hálsinum sléttara, rakameira og ferskara yfirbragð.
