Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

Wrinkles Schminkles

Hand Wrinkle Patches

Hand Wrinkle Patches

Venjulegt verð 6,990 kr
Venjulegt verð Söluverð 6,990 kr
Tilboð Vara ekki til
vsk. innifalinn

Handplástrar 

Handplástrarnir frá Wrinkles Schminkles eru endurnýtanlegir sílikonplástrar úr 100% medical-grade silicone, sérstaklega hannaðir fyrir handabökin. Þeir mynda rakaverndandi lag yfir húðinni sem hjálpar henni að halda raka og dregur úr krumpun á meðan plástrarnir eru notaðir.

Fullkomið næturdekur fyrir hendur sem eru þurrar, rakasnauðar eða farnar að sýna fínar línur – og svo einfalt að plástrarnir vinna á meðan þú sefur.

Hvers má vænta: Rakameiri og mýkri húð á handabökunum ásamt sléttara og fyllra yfirbragði og minni sýnileika fínna lína og hrukka.

Helstu innihaldsefni:
100% medical-grade silicone – Myndar rakaverndandi lag yfir húðinni sem hjálpar henni að halda raka, styður við sléttara yfirbragð og dregur úr krumpun húðarinnar á meðan plástrarnir eru notaðir.

Hentar fyrir

• Þurrar og rakasnauðar hendur
• Fínar línur og hrukkur á handabökum
• Húð sem virðist þunn eða þurr
• Húð sem hefur orðið fyrir miklu sólarálagi

Settu plástrana á handabökin fyrir svefn og leyfðu þeim að vinna á meðan þú sefur. Þeir eru líka tilvaldir þegar þú ert heima við tölvuna eða vilt einfaldlega gefa höndunum extra rakaboost í 1–2 klukkustundir.

Notkun

Hreinsið og þurrkið handabökin vandlega. Húðin þarf að vera alveg hrein, þurr og laus við handáburð, olíur eða aðrar húðvörur áður en plástrarnir eru settir á.

Fjarlægið hlífðarfilmuna og leggið einn plástur á hvort handabak.

Fyrir besta árangur má hafa plástrana á yfir nótt. Einnig má nota þá í 1–2 klukkustundir þegar húðin þarf fljótlegt raka- og sléttiboost.

Hugsaðu vel um plástrana

Til að halda plástrunum hreinum og viðhalda líminu sem best mælum við með Wrinkles Schminkles sílikonplástra sápunni, sem er sérstaklega hönnuð fyrir endurnýtanlegu sílikonplástrana.

Eftir notkun setur þú 1–2 pumpur af sápunni á límhlið plástursins og nuddar varlega með hringlaga hreyfingum. Skolaðu síðan vandlega með volgu vatni.

Leggðu plástrana með límhliðina upp og leyfðu þeim að loftþorna alveg. Þegar þeir eru orðnir þurrir eru þeir settir aftur á geymsluspjaldið þar til næst.

Forðastu venjulega sápu og önnur hreinsiefni, þar sem þau geta brotið niður límið og minnkað endingu plástranna.

Innihald: 1 par / 2 endurnýtanlegir sílikonplástrar fyrir handabök.

Nánar um vöruna

Endurnýtanlegir Wrinkles Schminkles handplástrar úr 100% medical-grade silicone fyrir þurrar og rakasnauðar hendur með fínum línum og hrukkum. Plástrarnir hjálpa húðinni að halda raka og gefa handabökunum mýkra, fyllra og sléttara yfirbragð.

Sjá frekari upplýsingar