Wrinkles Schminkles
Polishing Peel Pads x5
Polishing Peel Pads x5
Vara ófáanleg
Sýruklútar fyrir andlit, háls og bringu
Ljómi á aðeins tveimur mínútum
Sýruklútarnir frá Wrinkles Schminkles eru einföld en öflug leið til að fríska upp á daufa og ójafna húð. Klútarnir sameina AHA, BHA og PHA sýrur sem hjálpa til við að losa dauðar húðfrumur, slétta húðáferð og hreinsa yfirborð húðarinnar – án þess að bæta flóknu skrefi við húðrútínuna.
Formúlan byggir meðal annars á glycolic-, lactic-, citric- og malic sýrum ásamt salicylic sýru og gluconolactone. Með reglulegri notkun hjálpa klútarnir til við að minnka sýnileika svitahola, fínna lína og hrukka og gefa húðinni jafnara, bjartara og ferskara yfirbragð.
Þeir eru einnig frábærir til að undirbúa húðina fyrir næstu skref í húðrútínunni.
Hvers má vænta: Sléttari og bjartari húð, meiri ljóma og raka ásamt jafnari húðáferð og minni sýnileika svitahola og fínna lína.
Helstu innihaldsefni:
Glycolic Acid (AHA) – Hjálpar til við að fjarlægja dauðar húðfrumur og slétta húðáferð, Lactic Acid (AHA) – Exfolierar húðina og styður við rakameira og bjartara yfirbragð, Salicylic Acid (BHA) – Hjálpar til við að hreinsa svitaholur og bæta ásýnd óhreinnar húðar, Gluconolactone (PHA) – Veitir milda exfolieringu og styður við raka húðarinnar, Panthenol – Róar og gefur raka, Green Tea Extract – Andoxunarefni sem hjálpar til við að vernda og róa húðina.
Hentar fyrir
• Daufa og líflausa húð
• Ójafna eða grófa húðáferð
• Sýnilegar svitaholur
• Fínar línur og hrukkur
• Húð sem vantar meiri ljóma
• Þig sem vilt fljótlegt og einfalt exfoliering-skref í húðrútínuna
Af hverju þú munt elska þetta
Eitt lítið skref sem getur gert ótrúlega mikið fyrir ásýnd húðarinnar. Klúturinn sér um exfolieringuna á aðeins tveimur mínútum og skilur húðina eftir ferskari, sléttari og tilbúna fyrir serum og krem.
Fullkomið þegar húðin þarf smá „reset“ – án þess að húðrútínan verði flókin.
Notkun
Notið að morgni eða kvöldi á nýhreinsaða húð.
Nuddið einum vel vættum klút varlega yfir andlit, háls og bringu í 2 mínútur, þar til virku efnin hafa dreifst vel um húðina.
Ekki skola af. Látið húðina þorna alveg og haldið síðan áfram með venjulega húðrútínu.
Ef klútarnir eru notaðir að morgni skal nota sólarvörn á eftir.
Innihald: 5 einnota sýruklútar.
Nánar um vöruna
Wrinkles Schminkles sýruklútar fyrir andlit, háls og bringu sameina AHA, BHA og PHA sýrur til að exfoliera dauðar húðfrumur, slétta húðáferð og gefa húðinni meiri ljóma. Einföld tveggja mínútna meðferð fyrir bjartara, sléttara og ferskara yfirbragð.
